Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er stödd í Berlín í Þýskalandi þar sem hún fundaði í dag með Angelu Merkel. Hófst fundurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma, en áður en þær Katrín og Merkel funduðu héldu þær stuttan blaðamannafund.
Katrín hélt utan í gær og er heimsókn hennar til Berlínar í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands.
Síðar í dag mun forsætisráðherra taka þátt í fullveldishátíð á vegum sendiráðs Íslands í Berlín og jafnframt ávarpa jafnréttisráðstefnu sem ber yfirskriftina DÓTTIR, þar sem m.a. verður fjallað um samræmingu vinnu og fjölskyldulífs.
Forsætisráðherra mun síðar í dag taka þátt í fullveldishátíð á vegum íslenska sendiráðsins í Berlín og ávarpa jafnréttisráðstefnu.
AFP
Katrín Jakobsdóttir og Angela Merkel á blaðamannafundi áður en fundur þeirra hófst.
AFP
Angela Merkel tekur á móti Katrínu Jakobsdóttur við kanslarahöllina í Berlín.
AFP
Katrín talar og Merkel hlustar á viðstöðulausa þýska þýðingu.
AFP