Kristrún Heiða Hauksdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að kristrún Heiða er með BA-próf í almennri bókmenntafræði og MA-próf í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands.
Hún starfaði áður sem kynningar- og verkefnastjóri hjá Forlaginu og þar áður hjá Þjóðleikhúsinu.
Kristrún Heiða hefur þegar hafið störf.