Bjóða sex milljóna kr. fundarlaun

Tölvubúnaðinum var stolið úr gagnaveri á Suðurnesjum fyrir nokkrum vikum. …
Tölvubúnaðinum var stolið úr gagnaveri á Suðurnesjum fyrir nokkrum vikum. Myndin er úr safni.

Eigendur tölvubúnaðar sem stolið var úr gagnaveri á Suðurnesjum fyrir nokkrum vikum, heita 6 milljónum íslenskra króna í fundarlaun til þess sem getur veitt áreiðanlegar upplýsingar um hvar búnaðinn er að finna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Þar segir ennfremur, að þeir sem búa yfir upplýsingum um málið séu hvattir til að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 832-0253. Ábendingar um búnaðinn þurfa að berast fyrir 12.apríl nk. 

„Fundarlaunin verða greidd til þess sem lögreglyfirvöld staðfesta að hafi fyrstur komið á framfæri ábendingu um hvar búnaðinn er að finna. Gætt verður fyllsta trúnaðar við þá sem veita lögreglu upplýsingar um málið.

Lögfræðistofa sem fer með málið fyrir hönd eigenda búnaðarins sér um að annast greiðslu fundarlauna,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert