Innan bæjarstjórnar Seltjarnarness hefur verið rætt um að setja hámarkshraða á hjólastíga í bænum.
Íbúar þar hafa að undanförnu lýst áhyggjum af miklum hjólreiðahraða, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
„Hjólandi latexgallar með straumlínuhjálma þeysa framhjá manni algjörlega hljóðlaust í hópum í friðsælli náttúrunni svo maður hrekkur í kút og missir andann,“ skrifar íbúi nokkur á umræðuvettvangi þeirra á Facebook.