Styrkur til að rannsaka áhrif hryðjuverkaógnar

Hulda Þórisdóttir, dósent í stjórnmálafræði, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar …
Hulda Þórisdóttir, dósent í stjórnmálafræði, Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar og Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði.

Þrír fræðimenn við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands og norrænir samstarfsfélagar þeirra hafa fengið rúmlega 120 milljóna króna styrk frá Nordforsk til að rannsaka áhrif hryðjuverkaógnar á borgara og einnig áhrif lagasetningar gegn hryðjuverkum á viðhorf fólks til lýðræðis og trausts á stjórnvöldum.

Í tilkynningu frá Háskóla Íslands kemur fram að af heildarstyrknum til verkefnisins komi 32,5 milljónir króna í hluta Háskóla Íslands, en meðal aðstandenda þess eru þau Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar, Hulda Þórisdóttir, dósent í stjórnmálafræði, og Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði. Verkefnið lýtur forystu Dag Arne Christensen frá UNI Research AS í Noregi en auk þeirra koma fræðimenn Háskólanum í Bergen og Gautaborgarháskóla að verkefninu.

Nordforsk er  norræn stofnun sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og hefur umsjón með og styrkir rannsóknasamtarf á Norðurlöndum.  Stofnunin úthlutaði á dögunum þremur styrkjum til rannsókna sem tengjast öryggi samfélaga á Norðurlöndum undir áætluninni The Underpinnings of Nordic Societal Security. Alls bárust 17 umsóknir um styrki úr áætluninni en rannsóknarverkefnin þrjú sem fengu styrk að þessu sinni fá hvert um sig 9,5 milljónir norskra króna, jafnvirði um 124 milljóna íslenskra króna.

Meginrannsóknarspurning verkefnisins er hversu vel lýðræðisríki geti staðið af sér þá ógn sem þau standa frammi fyrir vegna hryðjuverka. Í verkefninu verður leitast við að svara henni með greiningu fyrirliggjandi gagna úr fjölþjóðlegum spurningakönnunum og söfnun nýrra gagna í þremur rannsóknarverkefnum sem hafa eftirfarandi þemu: 1) Hefur óttinn við hryðjuverk það mikil áhrif á borgara að þeir séu tilbúnir til að fórna borgaralegum réttindum?; 2) Hversu mikil áhrif hafa lagasetningar gegn hryðjuverkum á viðhorf fólks til lýðræðis og traust þess á stjórnvöldum og lögmæti þeirra?; 3) Hver eru tengsl mismunandi stjórnskipulags og ótta borgara við hryðjuverk?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert