Virkjun Tungufljóts í Biskupstungum er mikilvægt samfélagsverkefni sem renna mun styrkari stoðum undir byggð og atvinnu í uppsveitum Árnessýslu. Þetta segir Margeir Ingólfsson á Brú í Biskupstungum í Bláskógabyggð.
Sigurður Ingi Jóhannesson, samgönguráðherra tók á föstudaginn skóflustungu að byggingu Brúarvirkjunar í efri hluta Tungufljóts í Biskupstungum sem verður 9,9 MW rennslisvirkjun, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Framkvæmdin er samstarfsverkefni HS Orku og vatnsréttarhafa, það er Margeirs á Brú sem á land að Tungufljóti austanverðu og Skógræktarinnar sem á Haukadalsjörðina sem liggur að fljótinu í vestri.