Þunguð kona í lífshættu eftir nálastungur

Konan leitaði á bráðamóttöku í bráðri lífshættu vegna áverka sem …
Konan leitaði á bráðamóttöku í bráðri lífshættu vegna áverka sem höfðu hlotist af nálastungumeðferð. mbl.is/Árni Sæberg

Embætti landlæknis barst nýlega ábending frá Landspítala um alvarlegt atvik þar sem sjúklingur með svokallað loftbrjóst hafði leitað til bráðamóttöku og gengist undir aðgerð í kjölfar áverka eftir nálastungur. Sjúklingurinn var þunguð kona og var hún í bráðri lífshættu er hún kom á bráðamóttökuna, samkvæmt tilkynningu á vefsíðu embættisins.

Konan hafði farið í nálastungumeðferð í því skyni að bæta úr meðgönguógleði, en loftbrjóst er þekkt áhætta við nálastungur á bol- og hálssvæði. Loftbrjóst verður þegar gat kemur á lungað og það fellur saman, en slíkt getur hindrað öndun, sérstaklega ef það gerist báðum megin.

Fylgikvillar sjaldgæfir en geta verið alvarlegir

Embætti landlæknis hafa áður borist tilkynningar og ábendingar um tilvik af slíkum áverkum og að mati landlæknis er fullt tilefni til að vara við því að leitað sé þjónustu eða meðferðar hjá ófaglærðum áhugamönnum eða öðrum sem vafi getur leikið á um að kunni vel til verka.

„Á þetta sérstaklega við þegar um er að ræða viðkvæma einstaklinga, þungaðar konur, börn og sjúklinga með alvarleg eða langvinn veikindi svo sem krabbamein,“ segir í tilkynningu embættisins.

Þar segir enn fremur að gagnsemi nálastungumeðferða sé umdeild. Þótt að fylgikvillar séu „fremur sjaldgæfir“ geti afleiðingar þeirra verið mjög alvarlegar og í sumum tilfellum lífshættulegar.

„Auk loftbrjósts og ástungu í önnur viðkvæm líffæri, hafa komið upp alvarlegar sýkingar í kjölfar slíkra meðferða. Sem dæmi má nefna að nýlega lést maður í Noregi af sýkingu eftir nálastungur á hendi. Þá vöruðu dönsk yfirvöld á síðasta ári við áhættu af nálastungum eftir fjögur alvarleg tilfelli það sama ár, þar af var eitt dauðsfall,“ segir í tilkynningu Embættis landlæknis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert