Sérfræðingar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru nú að ljúka störfum á vettvangi á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu en þar fannst maður á sjötugsaldri látinn í íbúðarhúsi.
Lögreglunni á Suðurlandi barst á níunda tímanum í morgun tilkynning um að maður væri látinn í heimahúsi í Árnessýslu.
Í tilkynningu frá heimasíðu lögreglunnar segir að tilkynnandinn, sem jafnframt er ábúandi á bænum, ásamt öðrum manni sem einnig var staddur á vettvangi, séu í haldi og bíði skýrslutöku hjá lögreglu. Mennirnir þrír eru bræður og voru tveir þeirra gestkomandi hjá þeim þriðja.
Ummerki eru um að átök hafi átt sér stað á vettvangi. Dánarorsök mannsins liggur ekki fyrir en réttarkrufning verður framkvæmd strax eftir helgi til að leiða hana í ljós. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verið fram á gæsluvarðhald í málinu.
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir að bræðurnir tveir hafi ekki komið áður við sögu hjá lögreglu. Síðar í dag verði tekin ákvörðun um hvort að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum.