Ástandið óbreytt í Reykjadal

Svæðinu hefur verið lokað vegna drullusvaðs.
Svæðinu hefur verið lokað vegna drullusvaðs. Mynd/Adolf Ingi Erlingsson

„Við erum að fylgjast með frá degi til dags hvort ástandið breytist,“ segir Ólafur A. Jónsson, sviðstjóri hjá Umhverfisstofnun, um lokun svæðisins við Reykjadal. Umhverfisstofnun greip til þess ráðs að loka svæðinu en ástand á stígum er mjög slæmt.

Heimild Umhverfisstofnunar til lokunar er 2 vikur og er hún því í gildi til 14. apríl að öllu óbreyttu. Ef þörf er á að framlengja lokunina, líkt og gert var við Fjaðrárgljúfur, þarf staðfestingu ráðherra. Ólafur bendir á að nú sé kuldaskeið á leiðinni og ekki vitað hvaða áhrif það muni hafa.

„Við munum upplýsa um leið og það breytist, hvort sem um er að ræða lengri lokun eða opnun á svæðinu.“

Reykjadalur er vinsæll meðal ferðamanna.
Reykjadalur er vinsæll meðal ferðamanna. mbl.is/Rax
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert