Eigandi hunds af tegundinni Alaska malamute, sem beit fimm ára barn í andlitið á föstudaginn langa, staðfestir það í samtali við mbl.is að hundinum verði lógað síðar í dag. Hann segir það það eina ábyrga í stöðunni. Fjölskyldan vilji ekki hafa hundinn eftir þetta atvik eða gera nágrönnunum sínum það að vera með hann áfram.
Barnið sem hundurinn beit var flutt á sjúkrahús eftir að hafa komist sjálft í burtu frá hundinum og gert viðvart um árásina, samkvæmt heimildum mbl.is, en 80 spor þurfti að sauma í andlit þess. Reiðhjólahjálmur er talinn hafa bjargað lífi barnsins.
Hundurinn var bundinn í langa keðju fyrir utan heimili nágranna barnsins, en fjölskyldumeðlimur var heima. Áður hafði komið fram að eigendur hundsins hefðu ekki verið heima, en hann hafði hins vegar ekki verið skilinn einn eftir.
Þá hafði komið fram að hundurinn hefði áður ráðist á póstburðarmann, en eigandinn áréttar að hundurinn hafi þá aðeins glefsað í fatnað. Þetta hafi því verið í eina skipti sem hundurinn hafi bitið.
Barnið, sem liggur á Barnaspítala Hringsins, gekkst undir tveggja klukkustunda aðgerð á föstudaginn hjá lýtalæknum. Það mun gangast undir aðra aðgerð á morgun, samkvæmt heimildum mbl.is. Það er með nokkur bitsár á höndum, auk þess sem það var bitið á milli augnanna.