Úttekt Lyfjastofnunar á jáeindaskannanum fer fram í næstu viku. Bogi Brimir Árnason, heilbrigðisverkfræðingur á röntgendeild Landspítala, segir í samtali við mbl.is öllum undirbúningi nú lokið og leyfi Lyfjastofnunar það eina sem standi eftir.
Um leið og Lyfjastofnun hafi gert sína úttekt og veitt sitt leyfi verði skanninn því tekinn í notkun. Bogi segist ekki viss hversu lengi þurfi að bíða eftir afstöðu Lyfjastofnunar en býst við því að gert verði grein fyrir henni innan mánaðar frá því að úttektin fer fram.
Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir því að taka mætti tækið í notkun um miðjan september árið 2016, en þær hafa ekki staðist, né heldur áætlanir sem gerðu ráð fyrir því að skanninn yrði tekinn í notkun síðasta haust og janúarmánuði síðastliðnum
Lyfjastofnun þarf að veita sitt leyfi vegna þess að sjúklingum sem fara í jáeindaskannann er gefið geislavirkt lyf, svokallað merkiefni, sem framleitt er á Landspítalanum. Er það framleitt á staðnum sökum þess hve skammlíft það er.
Heildarkostnaður verkefnisins er 1.038 milljónir og stærsti hlutinn er gjöf Íslenskrar erfðagreiningar til íslensku þjóðarinnar, en hlutur spítalans er 188 milljónir króna.