Samningafundi Ljósmæðrafélags Íslands og ríkisins sem hófst klukkan eitt í dag lauk án niðurstöðu. Fundurinn var í styttra lagi.
Staðan er því óbreytt að sögn Áslaugar Valsdóttur, formanns Ljósmæðrafélag Íslands. Í Morgunblaðinu í dag sagði Áslaug að hljóðið í ljósmæðrum sé orðið mjög þungt.
„Þær eru orðnar þreyttar, búnar að missa þolinmæðina og vilja náttúrlega fá úrlausn mála. Þetta endar allt á endanum með samningi og ég vona að það komi eitthvað sem við getum unnið með,“ sagði Áslaug í samtali við Morgunblaðið.
Boðað hefur verið til fundar að nýju eftir tíu daga.