Sindri Þór Stefánsson strauk úr fangelsinu að Sogni síðustu nótt og fór með flugi til Stokkhólms áður lögreglan fékk tilkynningu um flóttann. Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Sindra og vinnur lögreglan hörðum höndum við að hafa uppi á honum. Hér má líta á það helsta sem hefur komið fram í málinu á þeim tæpa sólarhring sem er liðinn frá því að Sindri strauk.
Um klukkan eitt í nótt fór Sindri út um glugga á herbergi sínu í fangelsinu að Sogni. Fangaverðir urðu ekki varir við að Sindri var horfinn fyrr en um klukkan 7 í morgun. Lögreglunni barst tilkynning um strok Sindra um klukkutíma síðar. Þá var Sindri kominn upp í flugvél Icelandair sem lenti í Stokkhólmi rétt fyrir klukkan ellefu að íslenskum tíma.
Frétt mbl.is: Strokufanginn farinn til Svíþjóðar
Sindri ferðaðist á nafni annars manns en myndir úr öryggismyndavélakerfi Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar staðfesta að Sindri var um borð í flugvélinni. Lögreglan vinnur nú að því í samstarfi við sænsk lögregluyfirvöld að hafa uppi á Sindra. Þá hefur alþjóðleg handtökuskipun verið gefin út á hendur honum.
Sindri hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan 2. febrúar vegna gruns um aðild að stórfelldum þjófnaði á tölvubúnaði úr gagnaveri. Alls var um 600 tölvum stolið og talið er að verðmæti þeirra nemi um 200 milljónum króna. Lögreglan hefur ekki fundið þýfið í þessu umfangsmesta þjófnaðarmáli Íslands.
Frétt mbl.is: Lögreglan engu nær að finna tölvurnar
Sindri sat fyrstu tvo mánuðina í fangelsinu á Hólmsheiði en var fluttur á Sogn fyrir tíu dögum. Hann sætti síbrotagæslu vegna fyrra brota, sem tengjast meðal annars kannabisræktun.
Gunnar Ólafur Schram, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, sagði í samtali við mbl.is í kvöld að fullvíst sé að Sindri hafi haft vitorðsmann, eða -menn, sem aðstoðuðu hann að komast frá Sogni og að flugstöðinni.
Sogn er opið fangelsi og því hafði Sindri aðgang að tölvu og síma á meðan hann sat í gæsluvarðhaldi.
Páll Winkel fangelsismálastjóri sagði í viðtali í Kastljósi í kvöld að ekkert hafi bent til þess að Sindri væri líklegur til að strjúka úr fangelsinu að Sogni. „Það var ekkert sem benti til þess að það væri strokhætta af þessum manni,“ sagði Páll. Hann benti jafnframt á að samsetning fangahópsins á Íslandi geri það að verkum að fangelsismálayfirvöld þurfi að forgangsraða inn í fangelsið. „Það er harðasti kjarni manna sem afplánar fangelsisrefsingar í fangelsum.“
Frétt mbl.is: Ekkert benti til strokhættu
Upptaka úr eftirlitsmyndavél á Sogni sýnir þegar Sindri fer út um glugga á herbergi sínu. Páll segir að fangaverðir hafi sinnt starfi sínu vel síðustu nótt, en hægt sé að greina með góðum vilja þegar Sindri yfirgaf fangelsissvæðið.
Rannsókn lögreglu teygir sig nú út fyrir landsteinana og telur lögreglan líkur á að Sindri sé farinn frá Svíþjóð.