Rafmagnslaust er í Þorlákshöfn. Fram kemur á vef Landsnets að spenni hafi leyst út og að menn séu á leið í bæinn frá Selfossi til að kanna aðstæður.
Rafmagnið fór af klukkan 21.42, samkvæmt vef Landsnets, og er alvarleikinn metinn rauður, sem skilgreinist sem umfangsmikill atburður.
Í skilaboðum til íbúa á svæðinu kemur fram að rafmagnsbilun sé í Þorlákshöfn og nágrenni og verið sé að leita að bilun.
Að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúa Landsnets, varð bilun í spenni frá Rarik og er hópur frá þeim á leiðinni í bæinn.
Hún staðfestir að allur bærinn sé rafmagnslaus.