Streymt verður beint frá setningu landsþings Miðflokksins í dag klukkan kl. 9:30 en þá flytur Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, stutta setningarræðu.
Einnig verður streymt beint frá stefnuræðu formanns Miðflokksins sem flutt verður kl. 13:15 á morgun.
Sigmundur Davíð er einn í kjöri til formanns flokksins.
Birgir Þórarinsson, þingmaður Suðurkjördæmis, og Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Suðvesturkjördæmis og þingflokksformaður Miðflokksins, bjóða sig fram til varaformanns.