Fíknin yfirtók allt

Kristín hefur lengi barist við fíkn en hún varð fíkill …
Kristín hefur lengi barist við fíkn en hún varð fíkill í kjölfar erfiðra veikinda. Hún er edrú í dag. mbl.is/Ásdís

Hún er fíkill í bata, sportlega klædda konan á fertugsaldri sem bíður á kaffihúsinu. Kristín, sem kýs að gefa ekki upp föðurnafnið, eygir nú von um betra líf en í áraraðir hefur hún verið háð ópíumskyldum lyfjum. Það er einungis rúmt hálft ár síðan hún kom síðast úr meðferð; vonandi þeirri síðustu af mörgum.

Kristín hefur lengi búið í hryllingsheimi eiturlyfja og hefur margoft verið við dauðans dyr. Hún er eins og köttur með níu líf, en segist líklega búin með öll sín níu. Nú vandar hún sig svo hún fari ekki sömu leið og margir vinir hennar, í gröfina langt fyrir aldur fram.

„Við sem lendum í þessum heimi verðum ekki mörg edrú,“ segir Kristín alvarleg.

Mörkuð á sál og líkama

Á móti mér situr hún, útitekin ljóshærð kona með blá augu og stórt bros, en mörkuð á sál og líkama eftir neysluna. Hún er með stórt ör á miðjum hálsi, eftir slöngur öndunarvélar og handleggirnir eru alsettir örum eftir sprauturnar.

Aðspurð segir hún æskuna hafa verið góða; hún fékk gott uppeldi þar sem hvorki skorti ást né umhyggju. „Þau hafa auðvitað lokað á mig þegar ég hef verið í neyslu. En ég á falleg samskipti við fjölskylduna í dag,“ segir hún.

Þegar unglingsárunum lauk gerðist hún félagsliði og nuddari, svo þriggja barna móðir og eiginkona. Það var áður en fíknin tók öll völd.

Kvalin af sjúkdómi

En við byrjum á byrjuninni. Upphaf þessarar þrautargöngu Kristínar hófst inni á sjúkrahúsi en veikindi komu af stað atburðarás sem litaði allt hennar líf.

 „Ég veikist 2004 og var þá greind með legslímuflakk (endómetríósa), eftir að hafa verið misgreind í fyrri aðgerð. Ég fór inn á spítala á 25 ára afmælisdaginn og þá byrjaði boltinn að rúlla; það var alltaf verið að reyna að verkjastilla mig. Ég byrjaði að fá parkódín, svo parkódín forte og svo sterkari verkjalyf. Ég fór í þrettán kviðarholsaðgerðir á árunum 2004 til 2011. Þeir byrjuðu á að taka hægri eggjastokkinn en þá versnaði ég og þá tóku þeir legið og svo tóku þeir vinstri eggjastokkinn. Ég var samt alltaf svo kvalin og svo kom í ljós að annar eggjastokkurinn var kominn aftur, hann óx aftur. Ég er fyrsta konan á Íslandi sem lendir í því en læknirinn hélt að hann væri orðinn geðveikur. Þetta gerðist í þrígang. Þarna á árunum 2004 til 2009 fór ég úr parkódíni í oxycontin. Einhvers staðar á þessu tímabili varð ég fíkill,“ segir hún.

Kristín hefur farið í átján meðferðir og vonandi verða þær …
Kristín hefur farið í átján meðferðir og vonandi verða þær ekki fleiri. mbl.is/Ásdís

Með fulla plastpoka af morfíni

Aldrei hefði Kristínu dottið í hug að hún ætti eftir að enda sem forfallinn fíkill. Sem unglingur og ung kona fór hún út að skemmta sér eins og aðrir á hennar reki.

„Mér fannst gaman að djamma áður en ég var aldrei í fíkniefnum og reykti ekki. Ég var íþróttamanneskja. Það er mikill alkóhólismi í báðum ættum og ég hefði kannski þróað það með mér með tímanum, eða ekki. En ég hefði ekki farið út í fíkniefni, ég var þarna eiginkona með þrjú börn,“ segir hún og rekur sína sögu.

„Ég eignast fyrsta barnið tvítug og skildi svo við barnsföður minn þegar strákurinn var tveggja ára. Þegar ég var 23 ára kynntist ég fyrrverandi manninum mínum og var með honum í átta ár. Hann á stelpu fyrir sem ég tók sem mína eigin og svo eignuðumst við barn 2006 og vorum saman til 2011. Við vorum mjög hamingjusöm og það gekk allt vel þar til ég veiktist og allt fór í klessu,“ segir hún. 

 „Í janúar 2010 fór ég á Grensás í endurhæfingu. Ég fór þaðan með tvo plastpoka fulla af lyfjum með mér heim. Taugalyf, róandi, sterk verkjalyf. Þarna labbaði ég heim með hreint morfín og sprautur. Ég átti að sprauta mig undir húð þegar ég væri mjög slæm en þarna var ég búin að þróa þessa fíkn með mér og var með hreint morfín í höndunum. Ég náttúrulega bara elskaði þetta. Á einhverjum tímapunkti er ég farin að sprauta mig í æðarnar á fullu. Ég gerði mér enga grein fyrir því að ég væri orðin fíkill og það kóuðu flestir með mér, eiginkonunni með þrjú börn. Ég gerði þetta allt ómeðvitað og sá engan veginn hvað ég var komin út í. Ég man eftir einu skipti þegar ég jók skammtinn. Ég man eftir vímunni sem kom í hausinn á mér. Mér leið vel, eins og ég væri í himnaríki,“ segir hún.

Himnaríki sem átti fljótt eftir að breytast í hreinasta helvíti.

Missti allt á tveimur mánuðum

„Hjónabandið var að fara í vaskinn vegna neyslu minnar og árið 2011 sáu allir hvernig var komið fyrir mér og fólk sagði að ég yrði að fara í afeitrun. Ég fór í fyrstu afeitrunina í ágúst 2011 og skildi við manninn minn þar um sumarið. Í meðferð kynntist ég kærasta mínum og var með honum í fimm ár. Við vorum meira og minna edrú í tvö ár en þegar ég fór í fyrstu meðferðina trúði ég ekki að ég væri alkóhólisti, ekki séns,“ segir hún og brosir út í annað.

„Árið 2012 féll kærastinn minn og ég datt í það í kjölfarið og fór að prófa amfetamín, kókaín og rítalín, allt í nefið. Svo fór ég aftur í meðferð, í þriðja sinn og var þá edrú í 15 mánuði. Þá viðurkenndi ég loksins að ég væri alkóhólisti og hefði ekki stjórn. En ég var enn þá með króníska taugasjúkdóminn og legslímuflakkið og þurfti að taka ábyrgð á edrúmennskunni. Ég þurfti að vera á einhverjum lyfjum og svo féll ég 26. janúar 2014 og á tveimur mánuðum var ég búin að missa allt frá mér. Ég fór að sprauta mig aftur,“ segir hún.

„Það var allt farið, börnin fóru til feðra sinna og allt innbúið og milljón króna bíllinn minn, allt farið í handleggina á mér,“ segir Kristín sem hafði fram að þeim tíma haldið heimili með börnum sínum. Áður hafði hún dottið út af vinnumarkaði árið 2007 sökum veikindanna og hafði verið úrskurðuð öryrki.

Í dái í heilan mánuð

Á árunum 2014 til 2017 var Kristín inn og út úr meðferðum. Árið 2014 fékk hún heiftarlegar sýkingar í blóð og í hjartalokur. „Ég lá í dái í fjórar vikur og mér var ekki hugað líf. Það var bara beðið eftir að það myndi slokkna á mér. Fyrir kraftaverk vaknaði ég af þessu og er í rúma tvo mánuði á spítala. Þaðan fór ég á deild 33 og var með sýklalyf í æð í sex vikur og fór svo á áfangaheimili en viku seinna er ég dottin í það. Og mánuði eftir það er ég komin aftur á gjörgæslu með sýkingu. Og svona er saga mín búin að vera. Ég er búin að fá sex eða sjö sýkingar í blóð og hjartalokurnar og ég er komin með svo miklar skemmdir í míturlokurnar að það þarf að skipta um þær,“ segir hún. 

Ákvað að deyja

Áður en hún varð edrú, í ágúst á síðasta ári, var hún komin á endastöð.

 „Síðasta sumar var ég búin að ákveða að ég ætlaði að deyja úr þessum sjúkdómi. Ég ætlaði bara að klára þetta. En dóttir mín, þá ellefu ára gömul, samdi lag til mín. Í laginu er hún að grátbiðja mömmu sína að fara ekki frá sér. Hún var búin að segja að ég ætti að hlusta á þetta lag næst þegar við myndum hittast en ég sagði að það yrði ekkert næst. Ég bað pabba hennar og fósturmömmu að fara að undirbúa krakkana en sagði dóttur minni að senda mér myndbandið með laginu strax, sem fósturmamma hennar gerði,“ segir Kristín. Hún hlustaði á lagið og það fékk mjög á hana. „Ég bara brotnaði, gjörsamlega. Þá fór ég að hugsa, ég á þrjú börn sem ég elska út af lífinu. Ég á foreldra sem ég var að ganga frá af áhyggjum. Ég á bróður og frændfólk og vinkonur. En ég var orðin viss um það að það væri bara best að ég væri undir grænni torfu. Og ég hélt það af öllu hjarta, því auðvitað var fólk búið að loka á mig,“ segir hún.

Nú ertu búin að fara átján sinnum á Vog og lenda í ýmsu og ert búin að vera edrú í sex mánuði. Heldurðu að þér takist þetta núna?

„Einn dag í einu. Það sem ég gerði núna var að ég tók ákvörðun þegar ég gekk inn á Vog 8. ágúst síðastliðinn. Ég fékk mér í síðasta skipti. Og tók ákvörðun að ég væri hætt. Ég get ekki þetta fólk lengur, get ekki neysluna, ég var að deyja. Þetta er ekkert spurning í dag hvort ég ætli að vera í neyslu eða ekki. Þetta er spurning um hvort ég ætli að lifa eða ekki. Þetta eru valmöguleikarnir og ég ætla að lifa. Ég þarf að minna mig á það á hverjum degi.“

Viðtalið í heild er í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert