Heilbrigðisráðuneytið fundaði með Sjúkratryggingum Íslands bæði í gær og fyrradag vegna stöðunnar sem upp er komin varðandi heimaþjónustu sængurkvenna og barna þeirra. Þetta sagði Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í samtali við mbl.is.
95 ljósmæður í heimaþjónustu lögðu niður störf á mánudag og munu ekki taka til starfa aftur fyrr en nýr samningur verður undirritaður.
„Ég hef ekki fengið niðurstöðu þess fundar en þar var verið að prófa að stilla upp öðrum valkostum heldur en þeim sem komu fram á minnisblaði frá Sjúkratryggingum í lok mars og ég vonast til að það dugi,“ segir Svandís. Áður hefur komið fram í máli ráðherra að Sjúkratryggingar hafi á minnisblaðinu gert ráð fyrir að dregið verði úr heimaþjónustu ljósmæðra.
„Ég get ekkert annað en beitt mínum áhrifum til þess að þeir valkostir séu í samræmi við það sem ljósmæður hafa verið að tala um varðandi þennan rammasamning,“ sagði Svandís.
Velferðarráðuneytið hefur falið Landspítala og öðrum heilbrigðisstofnunum að sinna þjónustu við sængurkonur í millitíðinni og sagði í yfirlýsingu frá spítalanum í gær að þetta muni „skapa mikinn vanda sem bætist við þá alvarlegu stöðu sem blasir við vegna kjaradeilu ljósmæðra við ríkisvaldið“. Verkefninu yrði sinnt eins og unnt er þó þar til deilan leysist.
Svandís kveðst einnig hafa ræddi við Pál Matthíasson, forstjóra Landspítalans í gær og hún hafi einnig verið í sambandi við mína sérfræðinga varðandi heilsugæsluna. „Það er auðvitað verið að bregðast við og það er þannig að heilbrigðisþjónustan er á ábyrgð stofnannanna og þær verða að finna leiðir til að bregðast við aðstæðum sem þessum.“
Þetta sé Landspítalinn t.d. að gera með því að búa til ákveðna forgangsröðun, þar sem staða hvers og eins er metin og þeim sinnt sem eru í mestri þörf. „Það er það sem spítalinn verður að gera undir þessum kringumstæðum.