Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað beiðni Valitors um dómkvaðningu tveggja matsmanna í máli fyrirtækjanna Datacell og Sunshine Press Prodictions gegn Valitor.
Úrskurður þess efnis var kveðinn upp í dag.
Í málinu krefjast fyrirtækin þess að Valitor greiði Sunshine Press Productions tæpa 7,7 milljarða króna í bætur og DataCell um 405 milljónir króna.
Í þinghaldi 5. apríl lagði Valitor fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna til að svara nánar greindum spurningum.
Áður höfðu stefnendur aflað mats dómkvaddra matsmanna sem var lagt fram í dómi fyrir rúmum tveimur árum.
Spurningarnar sem biðja á matsmennina um að svara lúta að því hvert fjártjón Datacell og Sunshine Press Productions hafi verið við það að greiðslugátt fyrir Wikileaks hafi verið lokað í 617 daga en fyrirtækin tvö önnuðust rekstur gáttarinnar.