Sjálfstætt starfandi ljósmæður í heimaþjónustu funduðu í kvöld um samningsdrög um fyrirkomulag þjónustunnar við Sjúkratryggingar Íslands sem unnin voru á fundi Sjúkratrygginga Íslands og fulltrúa ljósmæðra í dag.
Í tilkynningu sem sjálfstætt starfandi ljósmæður sendu rétt fyrir miðnætti segir að niðurstaða fundarins var sú að drögin væru algjörlega óásættanleg.
„Í drögunum leggur heilbrigðisráðuneytið til skerðingu við þjónustu við sængurkonur til að unnt sé að hækka laun ljósmæðra og voru skilaboðin sú að ekki yrði sett meira fjármagn í þessa þjónustu,“ segir í tilkynningu.
95 ljósmæður sem sinnt hafa heimaþjónustu við sængurkonur lögðu niður störf á mánudag þar til gengið verði frá samningi þeirra við Sjúkratryggingar Íslands.
„Sem málsvarar kvenna og nýfæddra barna þeirra geta ljósmæður ekki sætt sig við að þjónustan sé skert á þennan hátt og ekki sé unnt að tryggja öryggi þeirra á fyrstu sólahringum eftir fæðingu með þessu móti. Heimaþjónusta ljósmæðra er í lykilhlutverki til að tryggja heilsu nýfæddra barna og að koma í veg fyrir innlagnir á fyrstu dögum ævinnar,“ segir í tilkynningu.
Allar líkur eru á því að Sjúkratryggingum Íslands verði tilkynnt í fyrramálið að samningsdrögin verði ekki samþykkt.