Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, hefur óskað eftir að fá að koma á fund velferðarnefndar við fyrsta tækifæri. Helst vill hann mæta á áætlaðan fund nefndarinnar á mánudag þar sem rætt verður hvort Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hafi haldið upplýsingum leyndum fyrir Alþingi og velferðarnefnd vegna máls Braga.
Barnaverndarnefndir höfuðborgarsvæðisins sendu fjölmargar kvartanir í nóvember um forstjóra Barnaverndarstofu sem og framkomu stofnunarinnar Barnaverndarstofu í garð þeirra til félagsmálaráðuneytisins.
Fjallað var um málefni Braga hjá Barnaverndarstofu í Stundinni í gær þar sem segir að Ásmundur Einar hafi búið yfir ítarlegum upplýsingum um afskipti Braga af barnaverndarmáli í Hafnarfirði og þrýsting sem hann beitti barnaverndarstarfsmann af vorkunnsemi við fjölskyldu manns sem grunaður var um kynferðisbrot gegn dætrum sínum.
Bragi segir í bréfinu að hann telji sig geta varpað nýju ljósi á málið „sem kollvarpi þeirri mynd sem dregin hefur verið upp í umfjöllun Stundarinnar um málið og í kjölfar hennar.“
Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar, sagði á Alþingi í gær að Ásmundur hafi sagt ósátt í þingsal þegar málefni forstjóra Barnaverndarstofu voru til umræðu.
Ásmundur Einar sagðist í gærkvöldi ekki hafa leynt gögnum um rannsókn á máli Braga og að hann standi við orð sín um að hvorki Bragi né Barnaverndarstofa hafi gerst brotleg í starfi.