Þjónustufulltrúar sem sögðu upp störfum í Hörpu í gær þakka kærlega fyrir þann stuðning sem þeir hafa fengið vegna kjarabaráttu sinnar.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem send var í kvöld.
Þjónustufulltrúarnir þakka almenningi en sérstakar þakkir fá tækni-og sviðsmenn Hörpu en þeir sendu þjónustufulltrúunum stuðningsyfirlýsingu fyrr í dag.
„Við viljum gjarnan nota tækifærið til að hvetja þá í sinni baráttu sem er löngu tímabær. Við getum tekið undir hvert orð sem þar kom fram og vonumst til að yfirmenn þeirra taki á þeim málum með faglegum og sanngjörnum hætti,“ kemur fram í yfirlýsingunni.
Þjónustufulltrúarnir þakka einnig Ellen Kristjánsdóttur tónlistarkonu fyrir stuðninginn. „Síðast en ekki síst viljum við þakka VR fyrir stuðningsyfirlýsinguna og að bregðast við með afgerandi hætti. Sá stuðningur var ómetanlegur.“