Maður sem ákærður hefur verið kynferðisbrot í starfi sínu sem boccia-þjálfari á Akureyri, neitaði sök er mál hans var þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í morgun.
Maðurinn var kærður til lögreglunnar fyrir að hafa brotið gegn þroskaskertri konu sem hann þjálfaði, en það var konan og móðir hennar sem kærðu manninn.
Maðurinn steig til hliðar sem þjálfari eftir að kæran kom fram, en hann hefur áður einnig verið sakaður um óviðeigandi hegðun gegn iðkendum sem hann þjálfaði.