Níundi sem lætur lífið á árinu

Alls hafa níu látið lífið í slysum í umdæmi lögreglunnar …
Alls hafa níu látið lífið í slysum í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi á þessu ári. mbl.is

Einstaklingurinn sem lést í umferðarslysinu á Suðurlandsvegi í dag er sá níundi sem hefur látið lífið í alls átta banaslysum í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi það sem af er þessu ári.

Þetta segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi.

„Við höfum aldrei séð víðlíka tölur og þessar,“ segir hann og bendir á að mest hafi 14 látist í banaslysum í umdæminu á einu ári. Þar á Oddur ekki eingöngu við umferðarslys.  

Hann gat ekki gefið nánari upplýsingar um tildrög slyssins í dag og sagði lögregluna vera að störfum á vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert