Umhverfisstofnun hefur fallið frá dagsektum á félagið H-foss. Þetta segir Björn Þorláksson, upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunnar, hafa verið gert í ljósi þess að gjaldtöku félagsins á bílastæðinu við Hraunfossa hafi verið hætt.
Greint var frá því í fréttum í fyrradag að lögreglan í Borgarnesi hefði stöðvað gjaldtöku félagsins á bílastæðinu og sendi Eva B. Helgadóttir, lögmaður H-foss, stofnuninni í gær andmæli þar sem hún sagði enga lagastoð fyrir því að banna gjaldtöku. H-foss hóf einnig gjaldtöku á bílastæðinu í október á síðasta ári og var sú gjaldtaka einnig stöðvuð af lögreglu og kærði félagið þá ákvörðun til umhverfisráðherra.
„Við höldum áfram að skoða þetta mál,“ segir Björn. Hefji H-foss hins vegar gjaldtöku á bílastæðinu við Hraunfossa á ný verði þeim aðgerðum mætt. „Enda sjáum við ekki að neitt hafi komið fram sem sýni að þessi gjaldtaka sé annað en lögbrot. “
Eva sagði í samtali við mbl.is í gær H-foss hafi ekki hafið gjaldtöku á aftur og að félagið vonaðist nú eftir niðurstöðu frá Umhverfisstofnun um það hvort að stofnunin muni beita boðuðum dagsektum, sem Umhverfisstofnun hefur nú greint frá að verði ekki gert.