Leit stendur yfir að tveimur einstaklingum sem eru í vanda staddir á Þingvallavatni.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur sent þrjá kafara á staðinn.
Björgunarsveitir eru komnar á svæðið en einhverjar sveitir voru kallaðar frá leitinni við Ölfusá en þar fór maður ofan í í nótt.
Að sögn Landshelgisgæslunnar stendur ekki til að senda þyrlu á vettvang.
Uppfært KL. 12:54:
Búið er að ná mönnunum tveimur upp úr úr vatninu og eru þeir á leiðinni í sjúkrabíl á Landspítalann, að sögn slökkviliðsins.
Slökkviliðið sendi þrjá kafara á staðinn en mennirnir fundust ekki með þeirra hjálp.
Engar upplýsingar fengust um líðan mannanna.