Búið er að ná tveimur mönnum upp úr Þingvallavatni en leit hafði staðið yfir að þeim. Mennirnir eru á leiðinni með sjúkrabíl á Landspítalann.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi þrjá kafara á staðinn en mennirnir fundust ekki með þeirra hjálp.
Slökkviliðið gat ekki gefið upplýsingar um líðan mannanna eða hvernig slysið vildi til.
Björgunarsveitir voru sendar á svæðið. Einhverjar þeirra voru kallaðar frá leitinni við Ölfusá en þar fór maður ofan í í nótt.
Að sögn Landshelgisgæslunnar stóð ekki til að senda þyrlu á vettvang.
Að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, voru það ekki björgunarsveitir sem náðu mönnunum upp úr vatninu.
Hlutverk sveitanna í verkefninu hefur mestmegnis verið að loka fyrir umferð á Biskupstungnabraut og Suðurlandsvegi til að greiða fyrir leið sjúkrabíl.