Leit að manni sem talið er að hafi stokkið í Ölfusá aðfaranótt sunnudags hefur ekki borið árangur. Um 30 björgunarsveitarmenn leituðu meðfram ánni og í grennd við hana í dag.
Leit hófst klukkan fimm síðdegis og samkvæmt upplýsingum frá Gunnari Inga Friðrikssyni, verkefnastjóra svæðisstjórnar björgunarsveitanna, var ákveðið að hætta leit í bili laust fyrir klukkan níu í kvöld.
Þrátt fyrir ágætisveður í dag eru leitarskilyrðin erfið þar sem vatnsyfirborð árinnar hefur hækkað mikið frá því á sunnudag.
Björgunarsveitarmenn, meðal annars frá Suðurlandi og Akranesi, tóku þátt í leitinni og gengu meðfram ánni. Þá voru einnig bátar, drónar og jet-ski notuð við leitina. Þyrla Landhelgisgæslunnar tók ekki þátt í leitinni í kvöld.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um næstu formlegu leit en Gunnar Ingi segir að ákveðnu eftirlitshlutverki verði gegnt áfram, meðal annars með drónum.