Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um klukkan hálftvö í nótt um hávaða og læti úr íbúð í austurhluta Reykjavíkur. Þegar lögregla kom á vettvang var einn íbúi mjög æstur og hafði skemmt eitthvað af innanstokksmunum.
Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu þar til af honum rennur og hægt verður að taka af honum skýrslu vegna málsins.
Um klukkan 23 var tilkynnt um stolna bifreið á ferðinni í Austurbænum. Fjórtán mínútum síðar voru tveir einstaklingar handteknir skammt frá bifreiðinni og voru þeir vistaðir í fangageymslu vegna frekari rannsóknar málsins.
Þá voru skráningarnúmer tekin af fjórum bifreiðum vegna vangoldinna tryggingariðgjalda og vanrækslu á aðalskoðun.