Atli Már sýknaður í meiðyrðamáli

Atli Már Gylfason mætti við dómsuppsögu í dag í máli …
Atli Már Gylfason mætti við dómsuppsögu í dag í máli Guðmundar Spartakusar gegn honum. mbl.is/​Hari

Atli Már Gylfason, fyrrverandi blaðamaður á Stundinni, hefur verið sýknaður af kröfu Guðmundar Spartakusar Ómarssonar um skaðabætur í meiðyrðamáli.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kvað upp dóminn í Héraðsdómi Reykjaness rétt í þessu. Þá er Guðmundi Spartakusi einnig gert að greiða 600 þúsund krónur í sakarkostnað.

Málið snýst um umfjöllun Atla Más um Friðrik Kristjánsson sem hvarf sporlaust í Suður-Ameríku árið 2013. Í ítarlegri umfjöllun Atla Más um málið kafar hann ofan í fíkniefnaheiminn á landamærum Brasilíu og Paragvæ og bendlar þá Sverri Þór Gunnarsson og Guðmund Spartakus við hvarf Friðriks.

Íslensku fréttamiðlarnir RÚV og Hringbraut fjölluðu einnig um málið á sínum tíma og vitnuðu meðal annars í umfjöllun Stundarinnar, auk erlendra fjölmiðla. Guðmundur Spartakus fór einnig í meiðyrðamál við báða fjölmiðla. RÚV samdi við Guðmund Spartakus í málinu og greiddi honum 2,5 milljónir í sakarkostnað og miskabætur. Sigmundur Ernir Rúnarsson hjá Hringbraut var hins vegar sýknaður í Hæstarétti fyrr í mánuðinum.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert