Veiðigjöld væntanlega á dagskrá á þriðjudag

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lilja Rafney Magnúsdóttir formaður atvinnuveganefndar Alþingis á ekki von á öðru en að breytingar á veiðigjöldum verði á dagskrá þingsins á næsta þingfundi núna á þriðjudag. Atvinnuveganefnd leggur frumvarpið fram að beiðni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

„Það er bara að koma málinu á dagskrá þingsins og svo förum við að glíma við það. Það er síðan í höndum þingsins hvort það verði breytingar á því eða ekki,“ segir hún. Spurð hvort þingmenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja séu einhuga að baki frumvarpinu segir hún svo vera, ríkisstjórnin leggi það fram og beri ábyrgð á því. 

„Það vilja örugglega allir flokkar hafa þetta eitthvað öðruvísi en veiðigjöldin verða núna eins og þau væru reiknuð í rauntíma sem allir flokkar hafa talað fyrir. Gjöldin ættu að vera lægri ef byggt væri á spálíkani veiðigjaldanefndar, þau ættu að vera 7,2 milljarðar kr. skv. upplýsingum um samtímaafkomu en niðurstaðan var að horfa til sérstaks afsláttar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og verður 8,3 milljarðar króna,“ segir hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert