„Maður áttar sig ekki á almennilega á því hvað Knattspyrnufélag Reykjavíkur hefur með feðraveldið að gera,“ segir Jónas Kristinsson, framkvæmdastjóri KR, um mynd þar sem þrjár konur stilla sér upp berbrjósta fyrir framan bikaraskáp KR.
Myndin er hluti af listsýningunni Demoncrazy á Listahátíð Reykjavíkur, en í tengslum við sýninguna hefur fjöldi kvenna stillt sér upp berbrjósta fyrir framan ýmis þekkt kennileiti.
Auk bikaraherbergis KR voru teknar myndir fyrir utan Alþingishúsið og Menntaskólann í Reykjavík auk Stjórnarráðsins. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segist Jónas erfitt að átta sig á gjörningnum enda telji hann KR vera félag jafnréttis en ekki táknmynd feðraveldisins.