Búið er að grafa 49,9% af heildarlengd Dýrafjarðarganga, eða 2.646,7 metra.
Þetta kemur fram í upplýsingum frá Vegagerðinni, Eflu og Geotek um framvindu verksins, Arnarfjarðarmegin.
Greint var frá þessu í opnum Facebook-hóp um Dýrafjarðargöng.
Þar segir að í viku 24 hafi verið grafnir 88,7 metrar í göngunum. Sama stórstuðlaða basaltlagið var á stafni allan tímann og gengu sprengingar vel.
Göngin verða alls 5,6 kílómetrar og þar af 5,3 kílómetrar í bergi, en vegskálar bætast síðan við.