Ákvörðun hluthafafundar Stemmu hf. þann 9. maí 2016 um að selja lóðarréttindi að Austurvegi 12 og 14, Holsvelli, til Fox ehf. var ógilt í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þar með var farið að kröfu Sjarms og Garms ehf. og Sigmars Vilhjálmssonar.
Sigmar og Sjarmur og Garmur stefndu Stemmu vegna deilna þeirra Sigmars og Skúla Gunnars Sigfússonar um ferðaþjónustuverkefni á Hvolsvelli. Sigmar var ósáttur við að tilboði Íslandshótela í lóðirnar upp á 50 milljónir króna hefði verið hafnað. Í stað þess var tilboði frá Fox ehf. og Þingvangi í aðra lóðina og kauprétt á hinni samþykkt. Tilboðið hljóðaði upp á 25 milljónir og 15 milljónir voru í kauprétt á hótellóð.
Stefnendur fóru fram á ógildingu sölunnar og greiðslu sakarkostnaðar af hálfu stefnda. Auk ógildingar héraðsdóms var Stemmu gert að greiða 4 milljónir króna í málskostnað.