18 sóttu um stöðu bæjarstjóra í Ölfusi en umsóknarfrestur rann út 2. júlí. Upphaflega sóttu 23 um stöðuna en fimm drógu umsókn sína til baka eftir að listi með umsækjendum var birtur umsækjendum.
Elliði Vignisson, fráfarandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Gísli Halldór Halldórsson, fráfarandi bæjarstjóri á Ísafirði, eru meðal umsækjenda. Þá eru Ásta Stefánsdóttir, sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri sveitarfélagsins Árborgar, Magnús Stefánsson, fráfarandi bæjarstjóri í Garði, og Björn Ingi Jónsson, fráfarandi bæjarstjóri á Höfn í Hornafirði, einnig meðal umsækjenda.
Samkvæmt upplýsingum frá bæjarráði Ölfuss verður lögð áhersla á að ráðningarferlið gangi hratt fyrir sig og að nýr bæjarstjóri hefji störf sem fyrst.
Nöfn umsækjenda í stafrófsröð eru þessi:
Anna Greta Ólafsdóttir sérfræðingur
Ármann Halldórsson framkvæmdastjóri
Ásta Stefánsdóttir bæjarstjóri
Baldur Þórir Guðmundsson útibússtjóri
Björn Ingi Jónsson bæjarstjóri
Björn S. Lárusson verkefnastjóri
Daði Einarsson verkefnastjóri
Edgar Tardaguila, móttaka
Elliði Vignisson bæjarstjóri
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri
Glúmur Baldvinsson, MSc í alþjóðastjórnmálum
Gunnar Björnsson viðskiptafræðingur
Linda Björk Hávarðardóttir verkefnastjóri
Magnús Stefánsson bæjarstjóri
Ólafur Hannesson framkvæmdastjóri
Rúnar Gunnarsson sjómaður
Valdimar Leó Friðriksson framkvæmdastjóri
Valdimar O. Hermannsson rekstrarstjóri