BHM lýsir yfir þungum áhyggjum

Fjöldi fólks kom saman á sam­stöðufundi með ljós­mæðrum fyr­ir utan …
Fjöldi fólks kom saman á sam­stöðufundi með ljós­mæðrum fyr­ir utan hús­næði ríkissátta­semj­ara í morgun. mbl.is/Hari

Bandalag háskólamanna (BHM) lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu kjaradeilu Ljósmæðrafélags Íslands við ríkið. Í yfirlýsingu frá BHM segir að velferð barnshafandi kvenna, nýbura og fjölskyldna þeirra séu undir og miklir hagsmunir séu í húfi. Þá telur BHM að mikilvægt sé að samningsaðilar nái samningum þannig að sem mest sátt ríki um þá.  

Fundi samninganefnda ríkisins og ljósmæðra sem hófst klukkan 10 í morgun lauk án niðurstöðu á fimmta tímanum í dag.

Í yfirlýsingu sem BHM sendi frá sér í dag vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins kemur fram að BHM hafi ítrekað bent stjórnvöldum á vankanta stofnanasamninga hjá ríkisstofunum. „Ákvörðun fjárveitinga til stofnana er oft ekki í samræmi við þarfir þeirra en það hefur áhrif á launamyndun og launasetningu starfsmanna. Afleiðingin er viðvarandi skortur á starfsfólki og ónóg nýliðun í mikilvægum starfsstéttum innan BHM,“ segir í yfirlýsingunni. Ástandið er óviðunandi og skaðar langtímahagsmuni samfélagsins að mati bandalagsins.

BHM veltir fyrir sér hvert opinber þjónusta stefni ef ekki fæst fært og hæft fólk til starfa. „Í dag eru það ljósmæður sem hverfa frá störum hjá ríkinu en fleiri stéttir gætu verið í svipaðri stöðu,“ segir í yfirlýsingunni og eru þroskaþjálfarar, sálfræðingar, náttúrufræðingar, sjúkraþjálfarar, félagsfræðingar, leikarar, lífeindafræðingar, geislafræðingar og dýralæknar nefndir í því samhengi. 

„BHM hefur ásamt aðildarfélögum sínum lengi krafist þess að menntun sé metin til launa og fjármagn verði aukið til stofnanasamninga til að mæta þeirri kröfu. Að mati BHM byggist þessi kröfugerð á sameiginlegum hagsmunum ríkisins og starfsmanna þess,“ segir í yfirlýsingunni. Þar er einnig vísað í skýrslu Ríkisendurskoðunar um mannauðsmál ríkisins frá árinu 2011 þar sem er m.a. bent á að ríkið þurfi að ákveða hvernig vinnuveitandi það vilji vera þar sem það glímir við hækkandi meðalaldur starfsmanna, mikla starfsmannaveltu, launamun á milli vinnumarkaða, aukið vinnuálag og fleira. 

„Ábendingar Ríkisendurskoðunar frá 2011 eiga ekki síður við í dag en brýn þörf er á að skapa ríkisstofnunum aukna möguleika til að vera skilvirkir og eftirsóknarverðir vinnustaðir,“ segir í yfirlýsingunni.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert