Skriðan sem féll úr Fagraskógarfjalli við Hítardal í gærmorgun sést greinilega á gervitunglamynd frá Evrópsku geimvísindastofnuninni, ESA. Skriðan er sennilega ein sú stærsta sem hefur fallið frá landnámi.
Frá þessu er greint á Facebook-síðu Eldfjallafræði- og náttúruvárhóps Háskóla Íslands. Myndin, sem er ratsjármynd frá SENTINEL-1 gervitungli ESA, er tekin klukkan átta í gærmorgun en talið er að skriðan hafi fallið milli klukkan 5 og 6 í fyrrinótt.
Í færslu hópsins segir að skriðan komi greinilega í ljós, þó að myndin sé ekki í hárri upplausn. „Þó að skriðan verði kortlögð með mun meiri nákvæmni með flygildum og einnig ýmsum búnaði í flugvél Landhelgisgæslunnar, er gagnlegt að hafa aðgang að gervitunglum sem mynda landið með reglubundnum hætti,“ segir meðal annars í færslunni.
Ef myndin er borin saman við mynd af svæðinu sem er tekin 25. júní virðist skriðan þekja um 1,8 ferkílómetra, en upptakasvæðið er þar ekki tekið með. Í færslu hópsins er einnig sagt frá því að ef loftmyndir af Fagraskógarfjalli eru skoðaðar sést eldra brotsár á svipuðum stað í fjallinu, sem og hraukar, sem bendir til þess að skriðan sem féll í gær sé ekki sú fyrsta sem fellur á svæðinu.