Fjölda fólks hefur drifið að á Melrakkasléttu þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar sveimar yfir og leitar að hvítabirni. Lögreglunni á Norðurlandi eystra bárust upplýsingar um sjöleytið um að bjarndýr hefði sést nyrst á Melrakkasléttu eða suður af Hraunhafnarvatni.
Blaðamaður mbl.is sem er á Melrakkasléttu segir að fólk fylgist spennt með aðgerðum en töluverður straumur var frá Raufarhöfn á Melrakkasléttu.
Lögreglan á Norðurlandi eystra ítrekaði fyrir fólki fyrr í kvöld að hringja strax í 112 ef það telur sig sjá hvítabjörn en reyna ekki að nálgast hann.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri er þyrlan búinn að sveima yfir Melrakkasléttunni í talsverðan tíma en ekkert nýtt hefur komið fram.