„Þetta kom óþægilega við mann og maður hafði auðvitað mestar áhyggjur af starfsfólkinu og hvort að það væri í hættu en sem betur fer var það ekki svoleiðis,“ segir Hafsteinn Viktorsson, forstjóri PCC Bakka, í samtali við mbl.is.
Eldur kom upp í ofnhúsi ofnsins Birtu í kísilverinu um klukkan hálfátta gærkvöld. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en um allsherjarútkall var að ræða og sinntu tæplega 30 slökkviliðsmenn slökkvistarfi um tíma. Frumniðurstöður benda til þess að eldurinn hafi byrjað í einum af ofngeymum sem mata hráefni inn í ofninn og breiðst þaðan yfir í rafskautapallinn.
Skemmdir eru ekki taldar verulegar og mun fyrirtækið einbeita sér að því að gangsetja hinn ofn verksmiðjunnar, Boga, og hefja framleiðslu aftur sem fyrst. Á meðan verður allt kapp lagt á að gera ofninn Birtu, rekstrarhæfan á meðan. „En þetta þýðir að við munum ekki framleiða kísil í þessum ofni í einhvern tíma, segir Hafsteinn, sem vonast til að framleiðsla verði komin aftur í gang eftir tíu daga.
Hann segir eldsvoðann mikið áfall. „Við vorum komin á flug með ofninn og farin að framleiða hágæðavöru þegar þetta gerist. Þetta er heilmikið áfall. En það birti yfir þegar maður gerði sér grein fyrir því að fólk var ekki í hættu og enginn slasaðist.“
Rafmagnslaust varð á öllu svæði kísilversins i gærmorgun og í voru neyðarskorsteinar opnir í um 45 mínútur þegar rafmagn kom aftur á. Hafsteinn segir að engin tengsl séu á milli rafmagnsleysisins og eldsvoðans. „Það hefur ekkert með þetta að gera. Það varð villa í tölvubúnaði sem brást vitlaust við þannig að það þurfti að opna neyðarskorsteinana tvo. Í hvert skipti sem slökkt er á ofnunum eða eitthvað fer úrskeiðis þá eru neyðarskorsteinarnir opnaðir og það hefur gerst nokkrum sinnum.“ Þetta er í fjórða sinn sem neyðarskorsteinar eru opnaðir frá því að kísilverið hóf starfsemi í lok apríl
Hafsteinn telur að starfsemin hafi samt sem áður gengið ágætlega frá því að fyrsti ofninn var gangsettur 30. apríl. „Heilt yfir hefur margt gengið ágætlega. Við höfum lent í fleiri bilunum í minni kerfum en við bjuggumst við. Allt í kringum ofninn og mengunarvarnir hefur virkað mjög vel en það hafa verið truflanir varðandi krana og það hafa verið tiltölulega einföld kerfi sem hafa verið að valda okkur mestum vandræðum og koma okkur á óvart.“
PCC Bakka ber skylda til að tilkynna til Umhverfisstofnunar þegar ofninn er stöðvaður og neyðarskorsteinarnir opnaðir og segir Hafsteinn að því hafi verið fylgt eftir. Eldsvoðinn í gær hefur einnig verið tilkynntur til stofnunarinnar. „En hann hafði engin umhverfisáhrif og ég veit ekki hversu mikinn áhuga þeir hafa á þessu,“ segir Hafsteinn.
Frá því að annar ofn kísilversins var gangsettur 30. apríl hefur fjórum sinnum verið slökkt á honum, fyrst vegna tæknilegrar bilunar, tvisvar vegna viðhalds málmhreinsibúnaðar og nú vegna eldsvoða.
Þó slökkt sé á ofninum og hann ekki í rekstri er enn mikill hiti í honum. Það veldur því að væg viðarbrennslulykt getur borist til Húsavíkur. Hafsteinn segir hins vegar að engin lykt hafi fundist það sem af er degi.