Þór Steinarsson
Leit að hvítabirninum sem tilkynnt var um á Melrakkasléttu á mánudag er lokið. Leitinni lauk klukkan hálffimm í gær eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar hafði flogið yfir svæðið þar sem tilkynnt var um björninn.
Ekki stendur til að halda leitinni áfram.
„Þetta er búið í bili alla vega. Þangað til að næsta tilkynning kemur, hvar sem hún verður á landinu,“ sagði Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri Norðurlands eystra, í samtali við mbl.is.