Félagið Stemma hf., sem er í meirihlutaeigu Skúla Gunnars Sigfússonar, hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sigmars Vilhjálmssyni og Sjarms og Garms ehf. gegn félaginu. Sigmar og Sjarmur og Garmur stefndu Stemmu vegna deilna þeirra Sigmars og Skúla, sem oft er kenndur við Subway, um ferðaþjónustuverkefni á Hvolsvelli.
Sigmar var ósáttur við að tilboði Fox ehf. í lóðir að Austurvegi 12 og 14 hefði verið tekið án þess að þær hefðu verið verðmetnar, auk þess sem Íslandshótel höfðu áður gert tilboð í lóðirnar upp á 50 milljónir króna. Tilboði frá Fox ehf. og Þingvangi í aðra lóðina og kauprétt á hinni var samþykkt, en það hljóðaði upp á 25 milljónir og 15 milljónir voru í kauprétt á hótellóð.
Svo fór í héraðsdómi að sala lóðarréttinda að Austurvegi 12 og 14 á Hvolsvelli til Fox var dæmd ótilhlýðileg og ólögmæt. Í samtali við mbl.is eftir uppkvaðningu dómsins sagðist Sigmar búast við því að málinu yrði áfrýjað.