Til að koma á betra flæði umferðar vegna lokana á Suðurlandsvegi í kjölfar umferðarslyss hefur lögreglan ákveðið að færa ytri lokanir til austurs að Bláfjallavegi svo umferð geti farið þá leið í átt að höfuðborginni og svo að hringtorginu við Norðlingavað svo umferð geti þá farið til baka og valið þá aðra leið austur fyrir fjall.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er að hreinsa upp olíu af veginum en vörubíll og jepplingur rákust á skammt austan við vegamót Suðurlandsvegar og Hafravatnsvegar.
Valgarður Valgarðsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að mikill viðbúnaður hafi verið vegna slyssins, bæði hjá lögreglu og slökkviliði. Tveir voru fluttir á sjúkrahús, bílstjórar beggja bifreiðanna, og eru meiðsli ökumanns jepplingsins alvarlegri en vörubílstjórans. Svo virðist sem bifreiðarnar hafi komið úr gagnstæðri átt en enn er unnið að rannsókn á tildrögum slyssins.
Búast má við töfum á umferð þarna meðan á rannsókn og annarri vinnu stendur en slysið varð skömmu fyrir hádegi.