Kristín skipuð sýslumaður á Suðurlandi

Kristín Þórðardóttir, sýslumaður á Suðurlandi.
Kristín Þórðardóttir, sýslumaður á Suðurlandi. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Dómsmálaráðherra hefur skipað Kristínu Þórðardóttur til að vera sýslumaður á Suðurlandi frá 1. ágúst. Kristín er fædd 6. september 1979. Hún lauk lögfræðiprófi frá lagadeild Háskóla Íslands í júní 2006. 

Kristín starfaði eftir útskrift sem fulltrúi og staðgengill sýslumanns og lögreglustjóra á Hvolsvelli en frá árinu 2015 hefur hún gegnt því starfi hjá sameinuðu embætti sýslumanns á Suðurlandi. 
Hún hefur verið settur sýslumaður á Suðurlandi frá 1. maí 2017. 

Sambýlismaður Kristínar er Friðrik Erlingsson og eiga þau þrjú börn, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. 

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra hefur skipað nýjan sýslumann á Suðurlandi.
Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra hefur skipað nýjan sýslumann á Suðurlandi. mbl.is/Arnþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert