Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með töluvert eftirlit um verslunarmannahelgina eins og jafnan áður. Áherslan í sumar hefur m.a. verið á eftirlit með hraðakstri, notkun öryggisbelta, ferðavögnum/eftirvögnum og hættulegum framúrakstri, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu.
Hún segir enn fremur, að það sé ánægjulegt að sjaldnast hafi verið ástæða fyrir lögreglu til að kæra fyrir vanbúnað eftirvagna/ferðavagna, en í nokkrum tilvikum hafi ökumönnum verið bent á atriði sem þeir þurfa að laga, t.d. að framlengja hliðarspegla þegar ökutæki draga breiða eftirvagna.
„Því miður eru líka alltaf einhverjir sem leyfa sér að virða ekki reglur um hámarkshraða og beltaskyldu, auk þess að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur en ekki þarf að fjölyrða um þá hættu sem það skapar í umferðinni. Flestar aðfinnslur gátu ökumenn lagað á vettvangi eða ábendingarnar fóru með ferðalöngunum sem gott veganesti. Í flestum tilvikum virðast ferðalangar því huga vel að ástandi ferðavagna/ökutækja og passa að fyllsta öryggis sé gætt,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Hún segir enn fremur, að ekki megi heldur gleyma mikilvægi þess að þeir sem eru með ferðavagna/eftirvagna í eftirdragi virði reglur um hámarkshraða, líkt og aðrir ökumenn. Auk aksturs á löglegum hraða sé líka nauðsynlegt að ökumenn og farþegar spenni beltin og að sjálfsögðu eiga allir ökumenn að vera allsgáðir.
„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur alla vegfarendur til þess að sýna þolinmæði, sem er ómissandi í umferðinni, og gæta skal sérstakrar varúðar við framúrakstur. Með ósk um velfarnað í umferðinni.“
Jafnframt þessu verður haldið úti eftirliti í hverfum í umdæminu. „Það er fátt óskemmtilegra en að koma heim úr ferðalagi og verða þess var að innbrotsþjófar hafi látið greipar sópa um heimilið. Af þeirri ástæðu munu lögreglumenn fylgjast með íbúðarhúsnæði um verslunarmannahelgina eins og kostur er. Lögreglan vill jafnframt hvetja fólk, sem heldur burt af höfuðborgarsvæðinu í lengri eða skemmri tíma, til að ganga tryggilega frá heimilum sínum. Gott ráð er biðja nágranna um að líta eftir húsnæði. Fá þá til að kveikja ljós, fjarlægja póst, leggja í bílastæði o.s.frv. Sömuleiðis er minnt á mikilvægi þess að verðmæti séu ekki skilin eftir í augsýn en þjófar sækjast m.a. eftir fartölvum, myndavélum o.þ.h. hlutum. Þá er rétt að hafa hugfast að GPS-tækjum er oft stolið úr bílum og því nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir þegar ökutæki er yfirgefið,“ segir lögregla.
Þá hvetur lögreglan fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir. Það geti oft skipt miklu máli að fá lýsingu á mönnum og bifreiðum. Það sé betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan.