Heimsækja Íslendingaslóðir

Katrín Jakobsdóttir á ríkisstjórnarfundi á Snæfellsnesi í síðasta mánuði.
Katrín Jakobsdóttir á ríkisstjórnarfundi á Snæfellsnesi í síðasta mánuði. mbl.is/Valli

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og eiginmaður hennar Gunnar Sigvaldason heimsækja Íslendingaslóðir í Kanada og Bandaríkjunum dagana 2.-7. ágúst.  

Ráðherrahjónin verða heiðursgestir á Íslendingahátíðum í Gimli í Manitoba og Mountain í Norður-Dakóta og munu taka þátt í hátíðarhöldum í tengslum við þær, að því er kemur fram í tilkynningu.

Ráðherrahjónin verða viðstödd ýmsa menningarviðburði og munu heimsækja staði sem tengjast vesturförunum.

Forsætisráðherra mun einnig funda með Brian Pallister, forsætisráðherra Manitoba, Rochelle Squires, ráðherra Manitoba fyrir sjálfbæra þróun og stöðu kvenna, og Janice C. Filmon, fylkisstjóra Manitoba.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert