Suðurlandsvegur er lokaður við Landvegamót, vestan við Hellu, vegna umferðarslyss. Er umferð beint í gegnum hjáleið, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.
Óskað var eftir aðstoð frá þyrlu Landhelgisgæslunnar sem er á leiðinni að slysstað.
Þeir sem eru á leið austur, frá Selfossi og í átt að Hellu og/eða Hvolsvelli, þá er umferðinni beint á veg í kringum vestra-Gíslholtsvatn.
Það er ekki hægt að segja á þessari stundu hversu lengi vegurinn verður lokaður en tilkynnt verður um leið og hann opnast aftur.
Uppfært klukkan 17:14:
Suðurlandsvegur er enn lokaður og hefur Rúv eftir lögreglunni á Suðurlandi að bíll og bifhjól hafi lent saman. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti einn slasaðan á Landspítalann og lenti þyrlan upp úr klukkan hálf fjögur.
Umferð er beint í gegnum hjáleið og þeir sem eru á leið austur, frá Selfossi og í átt að Hellu/Hvolsvelli er beint á veg í kringum vestra-Gíslholtsvatn. Af þessum sökum lengist leiðin um um það bil 20 km.
Uppfært klukkan 17:48
Vegurinn hefur verið opnaður á ný.