31 fíknefnamál hefur komið upp í Vestmannaeyjum það sem af er þjóðhátíð og er það svipaður fjöldi og í fyrra. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Mest eru þetta svokölluð neyslumál, en í einhverjum tilfellum leikur þó grunur á sölu. Efnin sem haldlögð hafa verið eru kókaín, amfetamín, kannabis, E-töflur og MDMA.
Sex lögreglumenn sinna fíkniefnaeftirliti á þjóðhátíð og njóta þeir aðstoðar fjögurra fíkniefnaleitarhunda.
Nokkur erill var hjá lögreglunni síðustu nótt og gistu 5 fangageymslur eftir gærkvöldið og nóttina. Hafði einn þeirra tekið árabát sem hann reri í út á höfnina og þurftu lögreglumenn að fara á báti til að sækja hann. „Hann var áberandi ölvaður, brást illa við afskiptum lögreglu og var handtekinn. Annar áreitti unga konu á bílastæði í dalnum kynferðislega með því að þukla á henni. Vitni voru að atvikinu og var hinn grunaði handtekinn. Ekki liggur fyrir kæra í málinu,“ segir í færslunni. Sá þriðji sem gisti fangageymsluna er grunaður um rúðubrot í félagsheimili ÍBV og hinir tveir sem eftir eru sátu inni vegna ölvunar og óspekta í Herjólfsdal.
Enn mun bætast við fjölda gesta í dag, en Herjólfur flytur um 1.700 manns til Eyja í dag og bætast þeir við þann fjölda sem fyrir er. Áætlað er gestir á brekkusöngnum í kvöld verði um 15 þúsund talsins.
Spáð hefur verið nokkrum vindi í Vestmannaeyjum í dag. Eru lögregla og þjóðhátíðarnefnd með viðbragðsáætlun vegna þess og var á samráðsfundi, sem haldinn var klukkan eitt í dag, farið vandlega yfir stöðuna með viðbragðsaðilum. Komi upp sú staða að tjöld fari að fjúka verða gestir aðstoðaðir við að komast í skjól.
Vindhraði er nú um 10 m/s í hreinni austanátt, en Veðurstofa hefur varað við að vindhraði geti farið upp í allt að 16 m/s þegar líður á daginn. Beinir lögreglan því þess vegna til þjóðhátíðargesta að huga að tjöldum sínum og festa þau tryggilega.