Voru villtir í þoku á Heklu

Björgunarsveitarmenn frá Suðurlandi ásamt hálendisvakt björgunarsveita fundu ferðamennina eftir skamma …
Björgunarsveitarmenn frá Suðurlandi ásamt hálendisvakt björgunarsveita fundu ferðamennina eftir skamma leit. mbl.is/Eggert

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurlandi eru núna á sjöunda tímanum að koma til byggða með tvo ferðamenn sem leitað hefur verið að á Heklu síðustu klukkustundirnar. 

Ferðamennirnir hringdu í Neyðarlínu um miðjan dag í dag og sögðust vera villtir í þoku á Heklu.

Björgunarsveitarmenn frá Suðurlandi ásamt hálendisvakt björgunarsveita héldu í kjölfarið á staðinn og fundu ferðamennina eftir skamma leit. Voru þeir hræddir, kaldir og hraktir en gengu sjálfir niður í fylgd björgunarmanna að því er segir í fréttatilkynningu frá Landsbjörg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert