Íslendingi, sem handtekinn var við landamæri Ísrael og Gaza-strandarinnar á föstudag, var sleppt úr haldi um klukkustund síðar og verður hann ekki ákærður vegna málsins. Þetta staðfestir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, í samtali við mbl.is.
Íslendingurinn var í tólf manna hópi aðgerðasinna á vegum samtakanna International Solidarity Movement (ISM) en í hópnum voru auk þess Englendingar og Ísraelar. Samtökin sem um ræðir styðja réttindabaráttu Palestínumanna með mótmælaaðgerðum án ofbeldis og eru alþjóðlegir sjálfboðaliðar, gjarnan frá Evrópu, fyrirferðarmiklir í baráttunni.
Myndbandi af mótmælunum var deilt á Facebook.