Þrír franskir ferðamenn sem gerðust sekir um utanvegaakstur á vegi F910 á svokallaðri austurleið inni á Möðrudalsöræfum á laugardag greiddu hver um sig 100 þúsund krónur í sekt í morgun.
Ferðamennirnir voru sex talsins á þremur jepplingum á leið á hálendið en óku þessa leið til að komast í Kverkfjöll og á Öskju.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar á Austurlandi voru tveir mannanna ánægðir með málalokin en sá þriðji var óánægður.
Sá var óánægður vegna þess að hann vissi ekki að það mætti ekki keyra utanvegar á Íslandi fyrr en hann var búinn að því. Honum var bent á að kynna sér aðstæður áður en haldið er af stað í ókunnugu landi.
Sektarheimildir vegna utanvegaaksturs eru á bilinu 50 til 500 þúsund krónur.