Um hundrað grindhvalir, sem höfðu orðið innlyksa í Kolgrafafirði, voru hraktir þaðan út á Breiðafjörð fram hjá Oddbjarnarskeri um 15 kílómetra austur af Flatey, þaðan sem þeir tóku stefnuna norðvestur.
Sigurður Helgason var á svæðinu og tók drónamyndbönd af torfunni þar sem hún svamlar um Kolgrafafjörð en undir lok myndbandsins sjást hvalirnir fyrir opnu hafi á Breiðafirði.
Sigurður er sérfróður um dróna en hann er framkvæmdastjóri DJI Reykjavík, drónaverslunar í miðbæ Reykjavíkur.
Pilot whale rescue from siggizoom on Vimeo.
Aðgerðum lauk á miðnætti í nótt en þá sögðu björgunarsveitarmenn skilið við hvalina við Oddbjarnarsker og hefur ekki spurst til þeirra síðan.